Sveinstindur er merkilegt og áberandi fjall á miðhálendi Íslands og stendur við Langasjó, sem er eitt stærsta og lengsta stöðuvatn landsins. Fjallið gnæfir yfir víðernið í kring og gefur þeim sem að ganga á það einstakt útsýni yfir hálendið í allar áttir. Það sést yfir á Vatnajökul og skriðjökla úr vestanverðum jöklinum, ásamt því að sjá Langasjó í allri sinni dýr með Breiðbak gnæfandi yfir norðurbakkann. Fögrufjöll og Uxatindar standa við Langasjó. Skaftá rennur meðfram í austri og sunnar má sjá Lakagíga.
Gangan á Sveinstind er ekki erfið og klárlega útsýnisins virði.

